2.5 ára!

Í haust (ágúst 2008) byrjaði ég í leikskóla og er alveg ótrúlega sáttur þar. Ég er á leikskólanum Hlíð í Mosfellsbæ og deildin mín heitir Hamrahlíð. Í september fékk ég svo hlaupabóluna! Mamma var eiginlega bara ánægð að hún skyldi koma núna, þá þarf ekki að hafa áhyggjur af henni meira. Lús og njálgur hafa líka eitthvað verið að hreiðra um sig á leikskólanum, en ég hef sloppið við það hingað til.
Ég er líka farinn að tala meira, en samt ekki alveg 100% skýrt. En aðrir en fjölskyldan mín eru farnir að skilja hvað ég er að tala um þannig það er bara gott mál! Ég er líka að ganga í gegnum allskonar tímabil. Í sumar hætti ég að vilja fara í bað og vildi ekki sjá neitt annað en sundlaugar! Það hefur sem betur fer gegnið til baka og núna er ég orðinn jafnmikill baðstrákur og áður. Ég hætti líka alfarið að vilja bursta í mér tennurnar á tímabili og kostaði það mikil slagsmál á kvöldin, en núna er það líka búið og tannbursta ég stundum 4 sinnum á dag! Ég er farinn að pissa oftar í koppinn og það hefur komið fyrir að bleyjan var þurr eftir nóttina og svo pissaði ég bara í koppinn um morguninn (mamma var ofboðslega stolt!), en það er nú planið að fá mig til að hætta á bleyju núna í desember. Ég er ennþá með snuð, en það er líka planið að taka það alveg í desember.
Ég er mjög hjálpsamur heima og er alltaf að bjóða mömmu aðstoð mína (sama hvort henni líkar betur eða verr!). Ég hjálpa henni út með ruslið, hjálpa til við að elda, þurrka af veggjum og sópa smá, ég fer sjálfur með fötin mín í þvottavélina og hjálpa mömmu að setja hana af stað, og svo er ég svona að byrja á því að hjálpa henni að búa um rúmið! Þannig það er nóg að gera. Fyrir utan öll heimilisverkin þá er ég farin að leika mér sjálfur (reyndar með Sölku með mér) inn í herbergi í lengri tíma en áður.
Ég tók upp á því á þessu ári að sofna alltaf í mömmu og pabba rúmi og sofa þar alla nóttina. Þar sem foreldrum mínum fannst það ekki nógu gott var það tekið í gegn núna í haust, þannig ég er aftur farinn að sofa í mínu rúmi, en ég skríð upp í til mömmu og pabba í kringum 4 - 5 á nóttunni.
2 ára!

Nú er ég orðinn tveggja ára "stór" strákur. Ég er algjört útifrík, ég vil helst vera úti allann sólarhringinn og það eru eiginlega alltaf slagsmál þegar ég á að fara inn. Ég er rosalega hrifinn af gröfum, vörubílum og þannig tækjum, sérstaklega eftir að ég sá pabba vinna á gröfu rétt eftir páskana, þá jókst áhuginn þrefalt.
Ég er ennþá með snuð, en ég er að hætta með það á daginn og minnka magnið á nóttunni (nú nota ég tvær í staðinn fyrir þrjár;) ). Það gengur erfiðlega að fá mig til að setjast á klósettsetuna, jafnvel í öllum fötunum... en mamma er ekkert að stressa sig á því.
Ég tala ekkert rosalega mikið... ég skil samt nánast allt og geri mig alveg skiljanlegann þegar ég þarf nauðsynlega. Þá nota ég handabendingar og mitt eigið tungumál. Ég segi núna jább, nei, mamma, babba (þýðir bæði pabbi og bíbí), æa (höldum að það sé afi), amma, anna, daddi (Doddi), mee (segir þetta um öll dýr nema hunda og hesta), voffvoff, (og hann hneggjar þegar hann talar um hesta), svo gó (lætur mann vita þegar honum finnst maður góður;) ), skó (skó-æði í gangi núna). Það eru einhver fleiri orð en þetta er svona það helsta, svo nota ég bara mitt eigið tungumál.
Ég er ekki enn byrjaður á leikskóla, en ég mun byrja í ágúst. Þá fæ ég að leika mun meira úti og fer líklegast að tala meira.
Svo fengum við okkur hund rétt fyrir jólin og erum við bestu vinir! Pínum hvort annað, kúrum saman og leikum:)
1 árs!
Vá, heilt ár liðið síðan ég fæddist! Mömmu finnst nú eins og það hafi gerst í gær, en samt eins og ég hafi bara alltaf verið til;)
Ég er byrjaður að standa allstaðar upp og ganga með, það styttist óðum í fyrstu skrefin! Ég er nú nógu mikil jarðýta nú þegar, mömmu kvíður eiginlega fyrir að ég fari að hlaupa! Ég er byrjaður að príla alveg helling, nota aðalega bláa stólinn minn í stofunni til að komast hátt upp í glugga. Allt dótið mitt er komið inn í herbergið mitt og get ég stundum dundað mér þar í smá tíma. Það er samt semmtilegra þegar mamma eða pabbi eru inni hjá mér, þá get ég líka leikið mér almennilega!
Mér finnst alveg rosalega gaman að hitta börn á svipuðum aldri og ég. Ég er sko alls ekki feimin við þau, þótt ég sé rosalega mikill mömmustrákur þegar ég á að hitta fullorðið fólk! En vonandi lagast það með tímanum, mamma heldur að þetta sé bara eitthvað tímabil sem ég er að ganga í gegnum;)
Þriðja tönnin kom svo núna 2. apríl í efri góm, þannig nú gnísti ég tönnum við hvert tækifæri, mömmu til mikillar óánægju. Hin efri framtönnin virðist vera alveg að koma líka.
Annars er nú ekkert meira nýtt að frétta af mér, nema að nú förum við mamma að vera duglegri að leika úti þar sem ég er búinn að fá pollagalla, stígvél og pollavettlinga!
10 mánaða

Nú er ég orðinn tíu mánaða og held áfram að stækka;)
Í skríð núna á hnjánum út um allt, komst að því að ég fer fljótari um þannig... sem er gaman fyrir mig, en ekki svo gaman fyrir mömmu sem má ekki líta af mér!
Og svo er ég farinn að standa upp! Renn samt alltaf á bossann eftir smá stund, en þá klappa ég bara fyrir sjálfum mér og geri aðra tilraun!
Loksins eru tennurnar að láta sjá sig, sú fyrsta kom 27. janúar í neðri góm og svo kom önnur þann 12.febrúar, líka í neðri góm;)
Ég er byrjaður að frekjast svolítið. Vill að mamma og pabbi leiki við mig allan daginn, vill fá matinn minn strax á borðið, nenni ekki að bíða eftir því að mamma fái sér einn bita á milli þess sem hún matar mig, og fleira og fleira! Þau eru nú að verða frekar þreytt á þessu, foreldrarnir mínir, og þau eru alltaf á leiðinni að taka þetta í gegn áður en ég verð helmingi verri!
9 mánaða

Þá er ég bara orðinn 9 mánaða prakkari! Tíminn líður alveg rosalega hratt.
Ég er farinn að skríða út um öll gólf og er óstöðvandi þegar ég fer af stað. Ég reyndar skríð bara á maganum núna en stoppa alltaf reglulega og fer upp á hnén og rugga mér í smá tíma áður en ég held áfram.
Ég er farinn að borða allann mat og finnst alveg rosalega gott að borða. Matartíminn er eiginlega uppáhaldstími dagsins hjá mér og þá borða ég sko mikið! Mamma þarf yfirleitt að stoppa mig svo ég æli nú ekki bara öllu upp.!
Ég er farinn að sofa alla nóttina svona yfirleitt. Byrjaði á því á gamlárskvöld. Mamma er mjög ánægð með það, henni finnst mikið auðveldara að vakna með mér klukkan 7 á morgnanna ef hún hefur fengið að sofa alla nóttina.
Í nóvember byrjaði ég hjá dagmömmu, það gekk brösulega í fyrstu en ég er allur að koma til núna. Fékk fyrstu eyrnabólguna stuttu eftir að ég byrjaði og svo náttúrulega flensu á eftir flensu. En það bara fylgir þegar maður fer að umgangast önnur börn:)
Það eru engar tennur komnar ennþá en ég er aðeins byrjaður að bólgna í neðri góm þannig að þetta hlýtur bara að fara að koma!
6 og hálfs mánaða

Ég er byrjaður að smakka venjulegan mat þótt ég sé aðalega að fá barnagraut og barnamauk. Mér finnst alveg rosalega gott að borða og ef einhver er að borða fyrir framan mig þá galopna ég munninn og bíð eftir að ég fá smá smakk! Ég er ennþá smá á brjósti, þá á morgnanna og á kvöldin áður en ég fer að sofa, svo er ég ennþá að frekjast til að fá á nóttunni... mamma lætur nefnilega alltof auðveldlega undan! En nú er verið að taka fyrir það í eitt skipti fyrir öll!
Ég fæ stoðmjólk á daginn og finnst hún bara mjög góð, og svo er auðvitað vatnið æðislegt líka! Svo er mjög gaman að fá að dunda við að tína upp í mig cherrios.
Ég hef farið nokkrum sinnum út að borða með mömmu, ömmu, afa, önnu frænku og dodda frænda og hefur það bara gengið vel. Seinast fékk ég meira að segja smá súpu með brauði útí og það var sko gott!
Ég er búinn að átta mig á hvernig ég get komið mér áfram í göngugrindinni (hef aðalega verið að fara aftur á bak hingað til). En ég hoppa áfram! Og ef ég verð mjög spenntur (eins og þegar ég þarf að fara að klípa í hann Mola) þá sveifla ég höndunum upp og niður og skræki á meðan ég hoppa í áttina að Mola! Og þá getur fólk hlegið:)
Ég er orðinn mjög duglegur að sitja og get setið smá stund einn áður en ég dett á hliðina! Svo er ég líka svona að reyna að skríða, átta mig alveg á að ég þurfi að setja einn fótinn framm, en svo er ég ekki viss hvað á að gera næst! En það er líka allt í lagi þótt það komi ekki alveg strax, mömmu finnst ágætt að ég sé svona nokkurn veginn kjurr þegar hún þarf að vesenast einhvað!
Síðast en ekki síst þá byrja ég hjá dagmömmu um mánaðarmótin (okt-nóv), þá getur mamma einbeitt sér betur að lærdóminum!
5 mánaða!

Nú er ég orðinn fimm mánaða! Ég er farinn að velta mér líka á magann og ef mamma lætur mig á bakið þá er ég strax kominn á magann! Stundum rúlla ég bara út af teppinu:)
Ég er orðinn MJÖG pirraður í gómnum, núna vakna ég ekki út af svengd á nóttunni heldur útaf pirring. Það er svona að meðaltali 4-5 sinnum yfir nóttina! Mamma er ekkert alltof ánægð með það þar sem núna getur hún ekki lagt sig með mér á daginn, hún er nefnilega byrjuð í skólanum og þarf að læra þegar ég sef!
Það er verið að reyna að venja mig á að fá þurrmjólk þegar mamma er í skólanum, en ég vil ekki sjá þá og gretti mig bara í framan... bíð frekar eftir að mamma komi heim, þótt ég verði smá pirraður þá læt ég mig hafa það!
Ég náði nú aðeins að fá að klípa í hann Gosa áður en honum var leyft að sofna, mér fannst hann MJÖG spennandi. Núna klíp ég stundum í hann Mola, en það er ekki eins gaman því hann gefur ekki frá sér nein hljóð við það;)
Ég er orðinn duglegur að sitja og finnst gaman að sitja í tripp trapp stólnum mínum og tæta blöð og henda öllu í gólfið sem ég næ í!
Svo er ég byrjuður að fá smá að borða í hádeginu líka, þá aðalega einhverskonar mauk eða stappaðann banana. Mér finnst líka mjög gott að fá mér vatn úr stútkönnu, þá aðalega þegar ég er pirraður í gómnum.
Og að lokum er ég byrjuður að vera í pössun í smá tíma á hverjum virkum degi meðan mamma er í skólanum. Það hefur gengið mjög vel hingað til, fyrir utan þetta vesen með þurrmjólkina;)
4. mánaða

Tíminn líður mjög hratt og ég er bara orðinn 4. mánaða! Ég fór í skoðun og var þá 64 cm og 6.015 g, fylgi alveg minni kúrvu;) Hjúkrunarfræðingurinn sagði líka að ég ætti alveg að geta sofið alla nóttina án þess að drekka.... allavega frá svona 23:00 til 6:00 eða 7:00. Þannig mamma verður að vera dugleg að fá mig til þess ef hún ætlar að fá einhvern svefn þegar hún byrjar í skólanum!
Ég velti mér í fyrsta skiptið frá maganum yfir á bakið 16 vikna. Ég er nú ekkert of duglegur að gera það núna en það kemur fyrir. Ég er mikið frekar að reyna að velta mér af bakinu yfir á magann, en það fer líklegast alveg að koma.
Uppáhalds staðirnir mínir núna eru leikteppið mitt, blá bumbo stóllinn og svo ömmustóllinn af og til. Ég er svona oftast á leikteppinu að reyna að spreyta mig einhvað, toga í dótið og babla við sjálfann mig í speglinum;)
Ég er alltaf sofnaður núna um 19:30 til 20:00 og við mamma förum svo á fætur milli 8:00 og 9:00. Þetta hentar okkur ágætlega því mamma og pabbi vilja eiga kvöldin fyrir sig:)
Ég er búinn að fara í nokkrar bæjarferðir og rölta niður laugarveginn í góða veðrinu. Svo finnst mér æðislegt að fá að sitja í vagninum, og horfa á allt í kringum mig (brosi útaf eyrum þegar ég fæ það!).
Ég fór í fyrsta skiptið út að borða 8. ágúst með mömmu, ömmu og afa í mosó, Dodda frænda og Ásdísi frænku. Ég var bara mjög rólegur og góður enda mamma búin að sjá til þess að ég væri saddur og með hreina bleyju.
Og síðast en ekki síst er ég farinn að fá graut á kvöldin. Og hann er bara nokkuð góður. Svo er mamma að venja mig á að drekka vatn úr stútkönnu og gengur það bara furðulega vel og mér finnst vatnið bara nokkuð gott!
3. mánaða

10 vikna var ég vigtaður eina ferðina enn og var þá komin upp í 5.250 g! Ég var nú ekki lengdarmældur í þetta skiptið, en það verður gert í 3 mánaða skoðuninni þann 10. júlí.
Ég er byrjaður að taka mikið eftir dóti og fólki í kringum mig. Ef ég er að horfa á einhvern skemmtilegann og hann færir sig þá get ég fylgt honum alveg með augunum! Svo er ég líka byrjaður að geta haldið á dóti með annarri hendinni í soldinn tíma áður en ég missi það, stundum ríf ég meira að segja dudduna út úr mér!
Það nýjasta hjá mér núna er að ég spýti út úr mér snuðinu og sting hnefanum upp í mig í staðinn, sama hvað mamma reynir að skipta út hnefanum fyrir dudduna þá gengur það bara ekkert. Ég vil sjúga hnefann mikið frekar;)
Það er alveg að koma hjá mér að velta mér á bakið þegar ég ligg á maganum, en þegar ég ligg á bakinu næ ég að rúlla mér á hliðina.
Ég er svo nýhættur að vera svona órólegur á kvöldin eins og ég hef verið. Núna þurfa mamma og pabbi ekki að labba með mig öll kvöld heldur getum við kúrt saman og horft á sjónvarpið eða spjallað (sem ég er farin að gera rosalega mikið núna), sem okkur finnst öllum mjög gott!